28.1.2010 | 18:10
Hvað er að Ögmundi?
Er Ögmundur Jónasson stoltur af því að hafa tafið og þvælst fyrir ríkisstjórninni í uppbyggingu á Íslandi? Er honum ekkert heilagt? Það var hreint alveg ótrúlegt að heyra í honum á Bylgjunni í morgun þar sem hann sakaði Má Guðmundsson seðlabankastjóra um að hóta þjóðinni þegar Már bendir á þá augljósu staðreynd að óleyst Icesavedeilan og óendurskoðuð AGS áætlun kostar samfélagið mikið fé. Það er misskilningur hjá populistanum Ögmundi Jónassyni að með því hafi Már verið að blanda sér í pólitík. Már var einfaldlega að sinna vinnu sinni. Það hefði verið mjög alvarlegur hlutur ef seðlabankastjóri hefði ekki dregið fram þessar augljósu staðreyndir. En kannski vill Ögmundur ekki að fólk út í bæ hafi leyfi til að minna þjóðina á ábyrgð Ögmundar og lagsbræðra hans í sjálfstæðisframsóknarhreyfingunni. Ögmundur vill kannski fá ritstjórnarvald yfir seðlabankastjóra þannig að axarsköft þingmanna og fyrrverandi ráðherra verði ekki dregin fram í dagsljósið. En Ögmundur kemst ekki frá því að líklega hafa fáir þingmenn og ráðherrar kostað Ísland jafnmikið og populistinn Ögmundur Jónasson, nema kannski Davíð Oddson.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.