9.2.2009 | 17:02
Kardimommubærinn
Leikhúsin ættu kannski að íhuga það að taka til sýningar tragikomedíuna "Kardimommubærinn". Í hin ýmsu hlutverk væri hægt að fá þekkt andlit sem kunna rulluna utanbókar þannig að æfingar þurfa ekki að taka langan tíma. Kannski væri hlutverkalistinn eftirfarandi:
Bastían bæjarfógeti: Geir H. Haarde
Frú Bastían: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Soffía fræknka: Jóhanna Sigurðardóttir
Kasper: Sigurður Einarsson
Jesper: Björgúlfur Guðmundsson
Jónatan: Jón Ásgeir Jóhannesson
Ljónið: Davíð Oddsson
Kamilla litla: Katrín Jakobsdóttir
Tommi: Össur Skarphéðinsson
Tóbías gamli í turninum: Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sívertsen sporvagnsstjóri: Kristján L. Möller
Bakarinn: Sturla Böðvarsson
Sörensen rakari: Steingrímur J. Sigfússon
Berg kaupmaður: Björgvin G. Sigurðsson
Ekki má gleyma Pylsugerðarmanninum en hann er auðvitað leikinn af Herði Torfa.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 10.2.2009 kl. 08:35 | Facebook
Athugasemdir
Svo væri hægt að fá hugmyndafræðinga sjálfstæðisflokksins til að sjá um leiktjöldin, kalla Jón Ásgeir og Björgvin Thor heim til að sjá um fjármögnun, Ólaf Ragnar í kynningarstörfin og þá er þetta orðið að sögulegri tragikómedíu
Hjalti Tómasson, 10.2.2009 kl. 18:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.