27.3.2009 | 09:18
Að sjálfsögðu
Það er öllum sem vilja kannast við ljóst að til þess að ná trausti út á við á ný verðum við að fá erlenda aðila inn í eignarhald bankanna. En við eigum líka að gæta þess að íslenska ríkið eigi virkan hlut í bönkunum, amk meðan það ábyrgist innistæður þeirra. Svo er nauðsynlegt að gæta þess að ævintýra- og óreiðumenn eins og Davíð Oddson og félagar sitji ekki að öllu stýrikerfinu og dragi okkur út í mýri. Síðast en ekk síst væri ráð að almenningur á Íslandi fengi sent hlutabréfin sín því fjármálaráðherra, hver sem hann er, er ekki treystandi til að fara með hlut almennings, hvorki í bönkum né öðrum fyrirtækjum í eigu eða hlutaeigu íslensku þjóðarinnar.
Erlendir kröfuhafar eignist hlut í bönkunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.